Ævintýralestur

Í Ævintýralestrinum lesum við og fáum lánaðar fimm ævintýrabækur sem við veljum sjálf. Á bókamerki sem við fáum á skólasafninu skráum við titil bókarinnar og hvenær við fáum hana lánaða. Þegar við höfum lokið við að lesa fimm ævintýri förum við með bókamerkið á skólasafnið og fáum að velja okkur ævintýrapersónu og viðurkenningarskjal.

Lesum og finnum fjársjóð!

Uppfært 30. júní 2020.